Þið sem hafið keypt raðhús út á krít og tvo bíla út á krít. Reiknið þið með, að þjóðin slái skjaldborg um ykkur? Er raunverulega ætlast til, að börnin okkar og barnabörnin okkar borgi fyrir óráðsíu fólks í góðærinu? Krafan um meiri skjaldborg fyrir heimilin er komin út í öfgar. Hún er orðin að tæki miðstéttarfólks til að láta afkomendur mína borga ruglið úr þeim. Misnotkun á kerfinu. Þegar hafa verið settar af stað aðgerðir til að lina skuldabyrði fólks. Þær gagnast mest þeim, sem ekki eru of skuldsettir. Þeir, sem tóku stórlán út á, að hægt var að taka stórlán, eiga að fá að verða gjaldþrota.
