Bönnum áhættu skattgreiðenda

Punktar

Spænska þingið samþykkti í gær breytingu á stjórnarskrá, sem setur skorður við hallarekstri ríkissjóðs. Akkúrat það, sem þarf að gera hér. Íslenzka hrunið og fjölþjóðlega kreppan kenndu okkur það. Banna þarf hallarekstur ríkissjóðs og banna þarf allar ríkisábyrgðir. Til dæmis ríkisábyrgðir á bönkum. Þeir eiga sjálfir að koma sér upp varasjóði í samræmi við traustið, sem þeir vilja njóta. Skattgreiðendur eiga þar hvergi að koma nærri. Sama er að segja um Landsvirkjun. Hún á ekki að njóta neinnar ábyrgðar ríkissjóðs, né heldur flugfélög, sem kaupa flugvélar. Burt með áhættu skattgreiðenda.