Bölvaðir túristar

Punktar

Bandaríkjastjórn er með á prjónunum að herða aðgerðir gegn ferðafólki frá Evrópu, þar á meðal Íslandi. Þetta kom fram í viðtali BBC við Michael Chertoff síðdegis í gær. Hann er ráðherra heimavarna. Hafa Íslendingar þó ekki verið par hrifnir af móttökum, sem nú gilda. Chertoff telur hættu á, að hryðjuverkamenn komi frá Evrópu. Eins og raunar flest illt, að mati sumra Bandaríkjamanna. Evrópa er stökkpallur terrorista og hryðjuverka gegn Bandaríkjunum, segir hann. Vill fá að samþykkja hvern fyrir sig fyrir hverja ferð hans. Íslenzkir túristar mega eiga von á hastarlegum móttökum.