Boltinn er hjá bönkunum

Punktar

Bankarnir vildu ekki koma að pakkanum, sem Geir Haarde reyndi að búa til í gær. Því tókst honum ekki að búa hann til. Þótt lífeyrissjóðir hefðu boðizt til að leggja 200 milljarða í sukkið af fé gamla fólksins. Bankastjórar ágirntust meira að segja þetta fé. Vildu krækja í það sem hlutafé. Engin takmörk eru sett ágirnd þeirra. Ætla að sigla sinn sjó næstu daga, selja eitthvað af eignum. Við opnun útibúa í Evrópu reynir á, hvort umheimurinn treystir biðleikjum bankanna og Geirs. Hann vildi ekki sýna viðmælendum spil sín í gær. Hann seinkar framvindunni, beinir kastljósinu að bönkunum.