Steingrímur J. Sigfússon valdi Þorstein Þorsteinsson sem stjórnarformann Bankasýslu ríkisins. Þorsteinn valdi Elínu Jónsdóttur sem forstjóra hennar. Elín valdi Guðrúnu Johnsen sem stjórnarmann í Arion banka. Guðrún ákvað, að Höskuldur Ólafsson bankastjóri skyldi fá fimm milljónir króna á mánuði. Steingrímur vísar á Þorstein, sem vísar á Elínu, sem vísar á Guðrúnu. Bófar virðast enga stjórn hafa hver á öðrum. Þannig er íslenzk bankasýsla í dag. Rekin af sams konar bófum og stjórnuðu bönkunum inn í hrunið. Engin tilraun er gerð til að aflúsa fjárglæfrastofnanir. Og bankaleyndin blómstrar enn.