Blóðþyrstur Beria á ferð

Punktar

Mikill harmur er kveðinn að Sjálfstæðis. Alþingi réði fjöldamorðingjann Lavrenty Beria til að kála Geir H. Haarde. Því til sönnunar hefur Beria opnað heimasíðu með skjölum málsins. Þetta kemur beint í kjölfar þess, að Alþingi er farið að ræða þjóðareign á kvóta. Þar með aukast líkur á, að gullið hætti að streyma frá kvótagreifum til Sjálfstæðis og Framsóknar. Vér megum ekki til slíks hugsa. Allt truflar þetta bjargfasta vissu flokksmanna um, að Jóhanna og Steingrímur hafi valdið hruninu. Siðblinda liðið, með þriðjung kjósenda í broddi fylkingar, afneitar öllum staðreyndum hrunsins.