Blaðaböl Sjálfstæðisflokks

Greinar

Ríkið styrkir Morgunblaðið og Vísi á vegum Sjálfstæðisflokksins, alveg eins og það styrkir Tímann, Þjóðviljann og Alþýðublaðið á vegum hinna flokkanna.

Annars vegar kaupir ríkið nokkur hundruð eintök af hverju þessara flokkspólitísku dagblaða og lætur einkum senda til sjúkrahúsanna. Hins vegar fá þingflokkarnir hver um sig nokkrar milljónir til stuðnings þóknanlegri blaðaútgáfu.

Eina dagblaðið, sem ekki tekur þátt í þessum leik, er Dagblaðið, enda er það algerlega óháð stjórnmálaflokkunum. Hin blöðin eru öll fjárhagslega tengd einhverjum stjórnmálaflokki, þótt einstaklingar eigi sum þeirra.

Sjálfstæðismenn hafa að undanförnu kvartað um ónógan stuðning Morgunblaðsins og Vísis við málstað flokks þeirra í kosningum ársins. Aðstandendur þessara blaða telja hins vegar meira en nóg að gert og raunar þurfi samkeppninnar vegna að draga enn úr stuðningi þeirra við flokkinn.

Óneitanlega er þjónusta Morgunblaðsins við Sjálfstæðisflokkinn margfalt meiri en sú aðstoð, sem blaðið fær á vegum flokksins. Flokksfundaauglýsingar mundu samtals kosta tugi milljóna á almennum auglýsingamarkaði. Þar við bætist svo allur áróðurinn í fréttum, viðtölum og stjórnmálagreinum, sem erfiðara er að meta til fjár.

Gagnrýni sjálfstæðismanna á Morgunblaðinu beinist raunar ekki svo mjög að magni stuðningsins, heldur eðli hans. Blaðið er sagt styðja fremur einstaka menn innan flokksins en flokkinn sem heild. Ennfremur er blaðið talið hafa tilhneigingu til að segja Sjálfstæðisflokknum fyrir verkum.

Ekki sízt eru sjálfstæðismenn óánægðir með klunnalegan áróður Morgunblaðsins, sem er arfur frá þeim tíma. er blaðið var helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað. Þá gat Morgunblaðið leyft sér margt, sem nú er orðið úrelt vegna minni hlutdeildar blaðsins í heildarfjölmiðlun landsins. Sjónvarpið er komið til sögunnar, svo og óháð dagblað, sem slagar hátt upp í útbreiðslu Morgunblaðsins.

Að sjálfsögðu er Vísir minna mál en Morgunblaðið í augum sjálfstæðismanna. Þótt hans sé getið í gagnrýninni, er minna um áþreifanleg efnisatriði í aðfinnslunum.

Birgir Ísleifur Gunnarsson hefur þakkað góðan stuðning forustugreina Vísis við Sjálfstæðisflokkinn í kosningabaráttunni og jafnframt kvartað um skort á slíkum stuðningi í stjórnmálalegu fréttaefni blaðsins.

Í heild er ekki hægt að telja, að Sjálfstæðisflokkurinn geti gert kröfur til aukinnar þjónustu Morgunblaðsins og Vísis. Sú þjónusta er vafalaust meiri en sú aðstoð, sem þessi blöð fá hjá ríkinu vegna stuðnings þeirra við Sjálfstæðisflokkinn.

Eina vopnið sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur í þessum vanda er hótunin um stofnun sérstaks flokksblaðs, sem hefur heyrzt æ oftar upp á síðkastið. Slíkt blað mundi væntanlega fá óskiptan hlut Sjálfstæðisflokksins af ríkisstyrkjunum. Morgunblaðið og Vísir mundu þá missa vænan spón úr aski.

Með ríkisstyrk, opinberum auglýsingum, hóflegri pappírsnotkun og miklu útbreiðslustarfi í hverju einstöku flokksfélagi er ekki fráleitt, að endar gætu náð saman. Vit væri í að kanna málið gaumgæfilega.

Á meðan verður Sjálfstæðisflokkurinn, þrátt fyrir ríkisstyrkina, að sæta því, að Morgunblaðið og Vísir ákveði sjálf stuðning sinn við flokkinn.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið