Árum saman handvaldi Björn Bjarnason dómara landsins út frá flokkshagsmunum. Öll hans frægð í framtíðinni mun snúast um ógeðfelldar ráðningar. Samt dugði þetta ekki til að ná fram fyllsta réttlæti Björns. Hann hefur skrifað heila bók um samsæri útrásarbófa, fjölmiðla, dómara, Samfylkingarinnar og Ólafs Ragnars gegn réttum dómum. Það er vænisýki á háu stigi að telja sína eigin dómara hafa gert samsæri með óvininum. Birni er sótsvart illa við fjölda manns, til dæmis ótal fjölmiðlunga. Sakar þá um að vera “hlöðukálfa” Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Jafnvel Mikael Torfason. Björn ætti að leita sér læknis.