Björgvin G. Sigurðsson virðist koma utan úr geimnum. Lætur eins og hann hafi ekki verið bankaráðherra í stjórn Geirs H. Haarde. Sem bankaráðherra vissi Björgvin ekkert í sinn haus og ber ábyrgð á hruninu. Afleiðing hrunsins er, að ríkið þarf að spara á öllum sviðum, svo sem í rekstri réttargeðdeildar. Fagmenn telja ódýrara að reka hana á Kleppi en á Sogni. Þar var hún á sínum tíma sett niður gegn mótmælum íbúanna. Björgvin mótmælir þessum sparnaði ríkisins. Virðist líta á réttargeðdeildina sem herfang Sunnlendinga. Er ekki kominn tími til, að aumur fyrrum bankaráðherra láti fara lítið fyrir sér?