Björgólfur Thor Björgólfsson ber beint og óbeint ábyrgð á fjórðungi af erlendum skuldum Íslands. Hans banki framdi IceSave glæpinn. Hans fyrirtæki fóru ránshendi um bankann og hirtu þar tugi og hundruð milljarða. Þau eiga svo ekki neitt, þegar á að fara að endurgreiða. Það gerist með flóknu neti innlendra og erlendra eignarhaldsfélaga. Actavis eitt skuldar eitt þúsund milljarða króna. Eitt þúsund milljarða. Takið eftir: Eitt þúsund milljarða. Svo á hann líka Novator, sem hefur tekið hundruð milljarða að láni. Það er rakinn dónaskapur, þegar Björgólfur Thor rífur kjaft og lögsækir fjölmiðla.