Bjóða spuna fyrir vottun

Punktar

Vottun felst í, að þriðji aðili ábyrgist gagnvart kaupanda, að seljandi bjóði frambærilega vöru. Umhverfismerki votta, að vara eða þjónusta sé sjálfbær og uppfylli fleiri kröfur. Þekktasta vottun í sjávarútvegi er MSC. Norski sjávarútvegurinn var fyrst andvígur því merki, en hefur núna tekið það upp. Íslendingar sitja eftir á botninum, þótt raunar hafi Íslendingur fundið upp MSC. Í staðinn vill sjávarútvegurinn votta sjálfur einhliða, að vara sín sé í lagi. Slíkt er ekki vottun þriðja aðila, heldur bara spuni seljandans. Kaupendur munu ekki láta Einar Guðfinnsson hafa sig að fífli.