Í stað þess að fara huldu höfði í Noregi skapraunar Bjarni Ármannsson okkur með því að mæla göturnar hér. Með sjö milljarða í vasanum fyrir starfslok neitar hann að borga lán upp á tæpan milljarð. Segir það ábyrgðarlausa meðferð fjármuna. Er greinilega algerlega siðlaus. Þegir ekki einu sinni, heldur básúnar sjálfur út siðleysi sitt. Líkist Bakkabræðrum, sem skrifa greinar um vonzku fjölmiðla. Þetta er einmitt ein helzta forsenda reiðinnar hjá fórnardýrum þessara manna. Gerendur hrunsins láta eins og ekkert hafi í skorizt. Þeir geti áfram hagað sér eins og þeim þóknast, valtað yfir alla.