Bjarni nær tökum á Flokknum

Punktar

Breytingar á afstöðu til samningsins um IceSave gerast einkum hjá þeim, sem styðja Sjálfstæðisflokkinn. Ríflega helmingur flokksins styður samninginn í samræmi við vilja formannsins. Minni hlutinn styður hrunstjórann mikla og fjölmiðla, sem eru hallir undir hann. Ef við berum saman fyrri könnun MMR og síðari könnun Fréttablaðsins, sjáum við strauminn. Flokksmenn eru smám saman að fallast á já. Forustumenn flokksins sjá líka, að brýnt er að missa ekki flokkinn í hendur pólitískra jaðarmanna. Munu því taka þátt í að mæla með samþykkt samningsins. Slík niðurstaða mundi treysta stöðu formannsins.