IceSave hefur batnað. Fulltrúi stjórnarandstöðunnar var í samninganefndinni. Því er eðlilegt, að meirihluti þingmanna Sjálfstæðisflokksins styðji síðustu útgáfuna. Samt héldu margir, að Bjarni Benediktsson væri sami lýðskrumarinn og Sigmundur Davíð og Þór Saari. Svo reyndist bara ekki vera og Bjarni fær prik. Auðvitað er hann húðskammaður af dýrasta Íslendingi sögunnar, Davíð Oddssyni greifa. Og hjörðinni, sem þráir greifann sinn eina. Sigmundur Davíð er kominn í felur síðan upp komst um 145 milljarða króna lesblindu hans á samninginn. Formenn í stjórnarandstöðu eiga ekki alltaf að vera í lýðskrumi.