Bjarni Ben pískaði þrælana

Punktar

Ég sat þingflokksfundi Sjálfstæðis sem ritstjóri Vísis undir lok sjöunda áratugarins. Mér sýndist Bjarni Benediktsson vera harðstjóri. Þingmenn hoppuðu kringum hann eins og hræddir þrælar kringum húsbónda. Hann stjórnaði með harðri hendi, lét vita, ef þeir brugðust væntingum. Suma lagði hann í einelti, svo sem Þorvald Garðar Kristjánsson. Sá kveinkaði sér, gat aldrei setið né staðið eins og Bjarni vildi. Mér sýndust fundirnir andlýðræðislegt gerræði þrælahaldara. Ég fílaði aldrei Bjarna. Sjálfstætt fólk hefði aldrei þolað hann. (Úr bókinni: Jónas Kristjánsson: Frjáls og Óháður, 2009)