Bitið á jaxlinn

Punktar

Hagstofan segir, að bara 10% heimila séu í vanskilum. Við skulum því gleyma öllum lygum óráðsíufólks og lýðskrumara. Hættum að láta okkur dreyma um, að skattgreiðendur niðurgreiði óráðsíuna. Setjum í staðinn í snarhasti lög, sem létta fólki að skila lyklum og verða gjaldþrota. Án þess að sitja uppi með óleysanlega skuldasúpu. Svo að fólk geti aftur byrjað á núlli. 5% heimila voru í vandræðum fyrir hrun og verða ævinlega í vandræðum. Viðbótin er ekki nema 5% vegna hrunsins. Það er satt að segja vel sloppið. Hálf þjóðin á í erfiðleikum, en bítur á jaxlinn. Hættum því að hlaða undir óráðsíufólkið.