Biskup segi af sér

Punktar

Komið hefur í ljós, að Karl Sigurbjörnsson biskup lá lengi markvisst á bréfi Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur um Ólaf Skúlason. Þótt skjalavörður Biskupsstofu minnti ítrekað á nauðsynlega skráningu bréfsins, lét Karl það sem vind um eyru þjóta. Ekki tókst því að skrá bréfið fyrr en eftir hálft annað ár. Það var ekki vangá, heldur eindreginn brotavilji biskups. Hegðun hans hefur enn frekar en áður dregið úr trausti fólks á embættinu og skaðað þjóðkirkjuna. Biskupinn er orðinn myllusteinn um háls kirkjunnar. Karli ber að segja af sér embætti og stuðla þannig að nýrri fótfestu þjóðkirkjunnar í samfélaginu.