Birgitta Jónsdóttir er andvíg Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og útskýrir það vel í bloggi sínu í dag. Birtir líka gott bréf Gunnars Tómassonar til landstjóra sjóðsins. Ég er sammála báðum. Sjóðurinn hefur staðið sig skelfilega í öðrum löndum og er enn við sama heygarðshornið. Er enn Chicago-trúar, öðru nafni Washington Consensus. Birgitta og Gunnar yrðu stórkostlega betri fjármála- og efnahagsráðherrar en jólasveinar núverandi ríkisstjórnar, Steingrímur og Árni Páll. Skuldarar og lánarar eiga að deila tjóninu. Taka þarf tillit til millistéttafólks, sem varla skrimtir og á ekki raðhús eða upphækkaðan jeppa.