Birgir Ármannsson hreinn

Punktar

Þingflokkur sjálfstæðismanna sker sig úr í spillingu. Þar tróna gráðugir braskarar í flestum sætum. Fremstur fer sá, sem réðst að bótasjóði Sjóvá, er lenti síðan á skattgreiðendum. Þar eru kúlulánadrottningar og skattsvikarar, sem greiddu sér laun í formi lána. Þar eru hugmyndafræðingar græðginnar og dæmdir afbrotamenn. Sumir greiddu sér arð úr gjaldþrota fyrirtækjum. Aðrir fengu milljónir á milljónir ofan frá útrásarbönkum og afbrotaliði. Og þær, sem skila ríkisendurskoðun ekki upplýsingum um styrki. Flest þetta mátti greiðlega sjá í yfirliti DV á föstudaginn. Er bara Birgir Ármannsson hreinn?