Reykjanes hefur sérstöðu meðal bæja landsins. Þar réðu hrunverjar meiru en annars staðar, undir forustu Árna Sigfússonar. Þar endurvöldu kjósendur hina sömu hrunverja fyrir ári. Samt var þá komið í ljós, að hitaveitan var gufuð upp, sparisjóðurinn fallinn og allar eignir bæjarins horfnar í gjaldþrota eignarhaldsfélögum. Sveitarfélagið situr eftir eignalaust og fárveikt og stórskuldugt. Og enn með Árna sem bæjarstjóra. Íbúar Reykjaness geta sjálfum sér um kennt að vera í verri málum en aðrir landsmenn. Þeir kunna svona vel við brennuvarga. Halda enn, að slíkir séu hæfastir allra til að slökkva eld.