Biðjum Breta afsökunar

Punktar

Ólafur Ragnar Grímsson er skelfilegur. Veltir sér upp úr þjóðrembu. Kominn er tími til, að við biðjum Breta afsökunar á honum og dónaskap hans. Þeir tóku fram fyrir hendur vina Ólafs, íslenzkra bófa, sem stútuðu fjárhag Íslands. Bretar styttu þjáningu Íslendinga af lausagöngu bankamanna. Ef strákarnir okkar í bönkunum hefðu fengið lengri tíma, hefði tjónið orðið óbærilegt. En það var kæft í fæðingu. Gordon Brown sagði stopp og það sparaði okkur hundruð milljarða. Við skildum það ekki þá og móðguðumst. Ég líka. En við skiljum það núna. Allir nema Ólafur og þjóðrembingarnir.