Bezt er að skipta um skoðun

Punktar

Versta ógæfa stjórnmálamanns er að geta ekki skipt um skoðun í ljósi nýrra upplýsinga. Heimurinn er alltaf að breytast og mennirnir verða líka að breytast. Fyrir örfáum árum var lífrænt eldsneyti talið allra meina bót, en nú er það talin skelfileg uppákoma. Ef rök gegn Evrópusambandinu eru upp urin, er gott að snúast til fylgis við það. Ef sadismi Útlendingastofnunar keyrir úr hófi fram, er rétt að reka verstu sadistana. Ef Seðlabankinn reynist vera úti að aka í peninga- og hagmálum, verða menn að taka á því. Ef trúarsetningar í hagfræði reynast vera rangar, þarf að hverfa frá þeim.