Berlusconi hlær bara

Punktar

Leki tölvupósta bandarísku utanríkisþjónustunnar á Wikileaks gefur frábæra innsýn í heim diplómata. Hafa minni þekkingu á málum en hægt er að fá úr greinum beztu sérfræðinga dagblaða. Eru fullir af slúðri á borð við að hinn og þessi séu að deyja úr krabbameini. Þótt þeir eigi langa ævi framundan. Diplómatar Bandaríkjanna efast ekki um, að Ísrael hafi rétt fyrir sér í smáu sem stóru. Eru harðvíraðir rugli um Miðausturlönd. Leggja ber niður þessa marklausu iðju. Fá bara nokkra menn til að lesa New York Times. Ég efast um, að margir fari á taugum í Evrópu vegna lekans. Enda hlær Berlusconi bara.