Í heilt ár hefur Belgía verið án ríkisstjórnar. Þar er húsvarðar-stjórn, sem passar sjoppuna, meðan þingmenn reyna að mynda alvöru-stjórn. Þetta gengur bara vel. Hagvöxtur er mikill í Belgíu, meiri en meðaltal í evru-ríkjum álfunnar. Góða lífið heldur áfram sinn vanagang á torgum Belgíu. Menn sötra súkkulaði og fá sér nýbakaðar vöfflur með sírópi. Enginn asi er á neinu þar í landi. Fínu frúrnar fara í strætó niður í bæ og götusóparar hafa 300.000 krónur á mánuði. Belgar hafa góða skriffinnsku. Embættismenn eru þar af öðru sauðahúsi en á Íslandi. Og ótrúlega fáir sakna belgískra stjórnmálamanna.