Beint frá bónda á borð

Punktar

Veitingahúsið Grillmarkaðurinn í Austurstræti býður mat “beint frá bónda”. Skyr, síað með gamla laginu, frá Þorgrími E. Guðbjartssyni á Erpsstöðum í Dölum. Ostar frá Eirnýju Sigurðardóttur í Búrinu við Nóatún. Lynghænur frá Herbert Pétri Guðmundssyni í Ásgarði á Reykjanesi. Lífrænt ræktuð mjólk frá Kristjáni Oddssyni og Dóru Ruf á Efra-Hálsi í Kjós. Hunang frá Matthildi Leifsdóttur á Elliðavatni. Hvanna-alið lamb frá Höllu S. Steinólfsdóttur á Ytri-Fagradal í Dölum. Eigandi Grillmarkaðarins er Hrefna Rósa Sætran og yfirkokkur er Guðlaugur P. Frímannsson, bæði í íslenzka kokkalandsliðinu.