Allt er við það sama á Íslandi. Bönkum er stjórnað af bófum í boði vinstri ríkisstjórnar. Enginn hefur verið dæmdur fyrir að setja Ísland á hausinn, ekki einu sinni Geir H. Haarde. Sömu embættis-silkihúfur stjórna landinu og hafa svo ömurlega gert það um áratugi. Enn var reynt að ráða framsóknarmann í Bankasýslu og Flokksmaður ráðinn í Hæstarétt. Sérhagsmunaráðuneyti Jóns Bjarna hagaði sér eins og það hefur gert frá ómunatíð. Kvótagreifar og álver hirða afraksturinn af auðlindunum. Hvar er þessi aðlögun að Evrópu, sem andstæðingar Evrópusambandsins kvarta um? Má ég biðja um einhverja aðlögun.