Barnanauðgari í Kompási

Punktar

Benjamín Þór Þorgrímsson er dæmdur barnanauðgari. Með hjálp annars dólgs nauðgaði hann þrettán ára stúlku. Fyrir það var hann dæmdur í Héraðsdómi Vesturlands 25. nóvember 2002. Hlaut þar tveggja ára fangelsi. Hinn sami Benjamín kvartar núna um, að Kompás noti “krimma” til að klekkja á sér með falinni myndavél. Hún sýnir Benjamín berja Ragnar Magnússon til óbóta. Milli slíkra afreka og annarra er Benjamín skjólstæðingur Björns Leifssonar í World Class, sem lætur hann þjálfa fólk. Benjamín er greinilega óhæfur til slíks. En hann hefur skondið og engilfagurt netfang: saint@simnet.is.