Bara í kvöld

Punktar

Er hættur að horfa á flugelda á gamlárskvöld. Fer að sofa áður en lætin byrja. Set tappa í eyrum og hverf á vit draumanna. Þegar ég var yngri, keypti ég kökur og rakettur í frekar hóflegum mæli. Gamlárskvöldin eru orðin svo mörg, að ég get misst af öllum, sem eftir eru. Hef síður en svo neitt á móti hávaðanum. Njóti þeir, sem yngri eru. Efast um, að þrír tímar af mengun skipti neinu máli. Svo er þetta gott fyrir fjárhag björgunarsveita. Hitt er öllu verra, þegar menn halda eftirleiknum áfram á nýjársdag og jafnvel fram eftir öllum janúar. Gjarna mætti fylgja eftir banni við hávaða á hversdagstímum og takmarka hann við gamlárskvöld.