Bankarnir verða að blæða

Punktar

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn og Evrópski seðlabankinn vilja ekki, að bankar taki á sig tjón af lánum til Grikklands. Þýzkaland er eina ríkið í Evrópu, sem vill, að bankar aki á sig hluta gríska tjónsins. Má þó ljóst vera, að bankarnir hafa lánað af óforsjálni. Kominn er tími til að víkja frá þeirri trúarsetningu fjölþjóðlegra seðlabanka, að bankar megi spila frítt á kostnað fólks. Þýzkaland reynir að brjótast undan kreddu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og Evrópska seðlabankans, sem gæta hagsmuna bankanna. Árangurslaust. Grikkir munu samt ekki sætta sig við að borga. Byltingin gegn bönkunum byrjar þar.