Bankar éti það sem úti frýs

Punktar

Efnislega er ég andvígur því að borga IceSave, þótt ég telji friðarsamning góðan af hagkvæmnisástæðum. Hrunið sýnir, að úrelt er að leyfa ríkisstjórnum að leggja tap banka á herðar skattgreiðenda. Ríkisábyrgð á bönkum leiðir til ábyrgðarleysis og óráðsíu og taumlausrar gróðafíknar eigenda og stjórnenda banka. Sameiginlegur sjóður banka ætti því sjálfur og einn standa undir tjóninu. Ástandið í Írlandi og víðar leiðir til uppreisnar fólks gegn plotti ríkis og banka. Því miður reyndu Davíð og Geir að leysa málið með mismunun innistæðueigenda. Framkölluðu þannig óviðráðanlegt IceSave, sem við borgum.