Bandarísk barnadráp staðfest

Punktar

Nú er jafnvel Hamid Karzai búinn að fá nóg. Rannsókn Sameinuðu þjóðanna sýnir, að sextíu börn fórust í loftárás bandaríska hersins í síðustu viku. Bandaríski herinn hafði logið, að bara þrjátíu manns hafi fallið í árásinni, allt skæruliðar. Forseti Afganistans heimtar núna, að allar loftárásir séu háðar fyrirfram samþykki hans persónulega. Talsmaður hans, Humajun Hamidzada, sagði í gær, að þolinmæði Afgana væri þrotin. Þeir gætu ekki þolað fleiri barnamorð bandaríska hersins. Kai Eide stjórnaði rannsókn Sameinuðu þjóðanna. Skýrsla hans um árás bandaríska hersins var harðorð.