Bandaríkjavædd Samfylking

Punktar

Meirihluti Íslendinga er evrópskur, vill góða þjónustu ríkis og vill borga fyrir hana. Minnihluti er bandarískur, vill sjá um sig sjálfur og helzt ekki borga neina skatta. Því miður endurspeglar pólitíkin ekki fjöldann. Með hjálp Samfylkingarinnar er verið að ameríkanísera samfélagið. Fólk borgar sífellt meira í sjúkrakostnaði og fleiri þættir heilbrigðismála eru einkavæddir. Sorphirða og skólar koma næst. Og formaður Samfylkingarinnar gengur svo langt að segja kreppuna alls ekki vera kreppu. Hún virðist telja hana vera fæðingarhríðir næsta skrefs í átt til bandaríska samfélagsins.