Bænakallið er frábært

Punktar

Frábært er, að listneminn Þórarinn Ingi Jónsson nenni að vekja Reykvíkinga um fimmleytið nokkra morgna. Mér finnst gott mál að trufla góðborgara með bænakalli múslima nokkur skipti. Finnst gott, að gangverkið í stöðnuðu lífi Íslendinga sé truflað. Mér finnst líka gott að koma í trúuð lönd og vera vakinn upp af kirkjuklukkum eða bænakalli. Ég held við höfum gott af öllu slíku. Þó vil ég sérstaklega taka fram til að hindra misskilning, að ég er andvígur fjölmenningu. Ég vil alls ekki slá af landssiðum til að múslimar móðgist ekki fyrir hönd spámannsins. Svo sem vegna eðlilegs skætings í garð trúaðra.