Augnlæknirinn er skrímsli

Punktar

Bashar al-Assad var augnlæknir í London, þegar bróðir hans fórst í bílslysi 1994. Faðir þeirra, einræðisherrann Hafez al-Assad kallaði augnlækninn heim til að taka við af sér. Assad er nú við völd í Sýrlandi og reynist grimmari einræðisherra en faðirinn og er þá mikið sagt. Hefur látið drepa 800 borgara vopnlausa í mótmælum og jarðarförum á götum úti. Fleiri hafa verið kvaldir til dauða í kyrrþey. Morðsveitir hans ganga þessa dagana hús úr húsi og taka menn höndum. Þúsundir manna hafa sporlaust horfið. Gaddafi og Mubarak eru kórdrengir í samanburði við augnlækninn frá London, sem er algert skrímsli.