Of mörg uppgjörsmál dragast. Sérstakur saksóknari koksar á loforðum um að hefja málaferli. Rannsóknanefnd lífeyrissjóða koksar á að skila skýrslu um starfshætti þeirra. Allir helztu glæpamenn þjóðarinnar ganga enn lausir og innanríkisráðherra eltir bara vélhjólafíkla. Á sama tíma gengur þjóðfélagið af göflunum út af IceSave og stjórnlagaþingi. Almenningur er mjög reiður og margir tjá sig þannig. Fólk verður að fara að snúa reiði sinni að afmörkuðum vandamálum. Hvað með að tunna Sérstakan til að fara að skila frá sér verki? Við gerum fátt af viti fyrir framtíðina mema farið sé að gera upp fortíðina.