Auðvald og öreigar sammála

Punktar

Barack Obama fær tvöfalt meira gjafafé til kosningabaráttunnar en John McCain. Obama er í senn studdur af auðvaldinu og öreigunum. Auðvaldið vill losna við stríðskostnað repúblikana og dreymir enn um blómaskeið Clinton-tímans. Demókratar eru semsagt taldir hafa meira vit á hagfræði. Því hefur auðvaldið gefið Obama 9,5 milljónir dala, en McCain bara 5,3 milljónir dala. Wall Street á því vin í Obama. Á sama tíma hefur Obama fengið þorrann af litlum framlögum, sem hvert um sig er minna en 200 dollarar. Það verður erfitt fyrir Obama í Hvíta húsinu að sigla milli skerja auðvalds og öreiga.