Alþýðusambandsþing kýs sér frjálshyggjugaura til forustu. Það vill ekki reka atvinnurekendur úr stjórnum lífeyrissjóða, þótt þeir kasti fé í sápukúlur. Vill efla álbræðslur, sem er sú atvinnugrein, sem gefur langminnsta vinnu á krónu og orkueiningu. Það passar, að kvótagreifar og Íslandsbersar missi ekki kvótann sinn, sem þeir hafa veðsett upp í topp. Alþýðusambandsþing er lítið að vesenast í atvinnuleysi og lágum launum. Það er upptekið við að nudda sér utan í Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins. Alþýðusambandið er komið langt frá hlutverki sínu. Tekur stöðu með hópum auðs og valda.
