Auðmenn eru Bör Börson

Punktar

Rangt er hjá Frjálshyggjufélaginu, að við tölum um auðmenn eins og nazistar töluðu um gyðinga á sínum tíma. Ekkert samhengi er þar á milli, þótt auðmenn séu milli tanna á fólki. Björgvin Valur Guðmundsson bendir á, að samlíking við Bakkabræður sé betur við hæfi. Við lítum á auðmenn græðgistímans sem fremur heimska og siðblinda gróðafíkla. Fólk lítur ekki svo á, að þetta sé ættgengur eða trúarlegur vandi. Áreiðanlega er þó einhver uppeldisvandi að baki. Útrásarvíkingar voru og eru sannfærðir um eigið ágæti. Og töldu sér trú um, að ímyndað góðæri tæki engan enda. Eru þeir ekki bara Bör Börson?