Lífeyrissjóðirnir hafa viðurkennt 500 milljarða króna tap á hruni fjármála- og fjárglæfrastofnana. Tapið fer líklega upp í 700 milljarða, þegar öll kurl eru komin til grafar. Það er sjöfalt IceSave. Tapið er á kostnað fólksins, sem á peningana í sjóðunum. Þeir reyna að breiða yfir tapið með því að halda lífeyrisgreiðslum uppi meðan félagsmenn eru að komast yfir versta áfallið. Tapið mikla stafar af óhæfum stjórnendum og stjórnarmönnum lífeyrissjóða. Þar hafa safnast saman atvinnu- og verkalýðsrekendur og ausið fé á verstu fjárglæframennina. Segja samt ekki af sér og enginn þeirra biðst afsökunar.
