Áttatíu tré kolefnisjafna ekki ferð flottræfils-ráðherranna til Búkarest. Fréttablaðið hefur það eftir The Carbon Neutral Company, sem er fyrirtæki, en ekki vísindastofnun. Auk þess vaxa tré miklu, miklu hægar hér á landi en í löndum, sem fyrirtækið miðar við. Því miður hafa kolrugluð dæmi um jöfnun kolefnis fest rætur á Íslandi. Bílaumboð þykjast selja kolefnisjafnaða bíla. Fólki er talin trú um, að létt sé að mæta útblæstri koltvísýrings. Forsíðufrétt um áttatíu tré á móti ferðinni til Búkarest er dæmi um það. Sáluhjálp fyrir flottræfilshátt fæst ekki með svo billegu aflátsbréfi.
