Atlagan grófa

Greinar

Hvað ætli menn segðu, ef Siglingamálastofnunin tæki fram fyrir hendur Sjómannaskólans og færi að útskrifa skipstjóra millilandaskipa eftir tveggja vikna námskeið? En hverju mega menn ekki búast við eftir atburði síðustu daga.

Fiskvinnsluskólinn útskrifar nemendur sína eftir þriggja ára nám. Samkvæmt lögum á hann einnig að sjá um styttri námskeið í fiskiðnaði. Það er því óvenju gróft hjá Fiskmati ríkisins að hefja þriggja vikna námskeið, er veita eiga sömu réttindi og Fiskiðnskólinn. Og þetta gerir fiskmatsstjóri undir verndarvæng sjávarútvegsráðherra.

Þetta er ruddaleg atlaga að Fiskvinnsluskólanum. Nú liggur beint við, að nemendur hans hætti sínu langa og dýra námi og fari heldur á einfalt námskeið. Ráðherra væri nær að efla skólann og standa við ákvæði laganna um, að slíkum skóla verði komið upp víðar en á Reykjavíkursvæðinu.

Jónas Kristjánsson

Vísir