“Það er hlutverk forstöðumannsins að halda uppi aga og reglu í fangelsinu og hann ákveður, hvernig það er gert. Við skiptum okkur ekkert af því …” Þannig bullar Erlendur Baldursson hjá Fangelsismálastofnun í viðtali við DV. Geðþótti forstjóra getur ekki ráðið reglum í fangelsi. Ekki einu sinni geðþótti Margrétar Frímannsdóttur. Um valdbeitingu í fangelsi hljóta að vera til skrifaðar reglur á vegum ráðuneytis, samþykktar af ýmsum aðilum. Ef Fangelsismálastofnun hefur ekki haft frumkvæði af slíku, er hún úti að aka. Hugarfarið í orðum Erlendar er forngripur, ættaður frá átjándu öld.
