Athafnasamur forsetabróðir

Punktar

Ahmed Wali Karzai er umfangsmesti fíkniefnasali Afganistans. Bróðir Hamid Karzai, forseta landsins og mesta kosningasvindlara síðari tíma. Í morgun upplýsti New York Times, að fíkniefnabróðirinn er á launum hjá bandarísku leyniþjónustunni CIA og hefur verið í átta ár. Blaðið upplýsti líka, að hann leigir CIA jarðir og hallir í Afganistan. Mestur hluti fíkniefna í Evrópu á uppruna sinn hjá forsetabróðurnum. Því er vel við hæfi, að norska Stórþingið veitti Barack Obama friðarverðlaunin. Hann er einmitt að fjölga hermönnum í Afganistan um tugi þúsunda. Enda veitir ekki af að vernda þá Karzai-bræður.