Huang Nubo heldur uppteknum hætti í rangfærslum um viðskiptahefðir hér á landi og á Vesturlöndum. Talar enn um tvöfeldni Vesturlanda. Tvöfeldnin er ekki vestræn, heldur kínversk. Erlendum aðilum er ekki leyft að kaup land í Kína, en Kínverjar ætlast samt til að geta keypt land erlendis. Meira en lítið er bogið við þennan ástmög Samfylkingarinnar. Líklega verður hann til vandræða hér, ef hann fær land á leigu. Skilur sennilega ekki íslenzk lög um jarðnæði frekar en önnur vestræn lög. Furðulegt dálæti Samfylkingarinnar á þessum síbylju-rugludalli hefur verið til vandræða í stjórnarsamstarfinu.