Átakanlegt er, hvernig þekktasti verkalýðsrekandi landsins grátbiður um álbræðslur. Gylfi Arnbjörnsson hefur þær á heilanum. Samt eru álbræðslur sú starfsemi, sem skapar fæst störf á hverja krónu. Frá sjónarmiði andstöðu við atvinnuleysi eru allir atvinnuvegir betri en álbræðslur. Ef ríkið hefði fé aflögu til að borga hafnir álgræðgismanna, væri því betur varið í annað. Álbræðsluást Gylfa stafar af heilaþvotti atvinnurekenda. Hann hugsar eins og atvinnurekandi, enda sjálfur verkalýðsrekandi. Ævinlega endurómar hann sjónarmið atvinnurekenda, enda gerir hann ekkert fyrir umbjóðendur sína.