Ást: Della með væntingum

Punktar

Búinn að finna stóru ástina og er ótrúlega ástfanginn. Þetta las ég í blaði um helgina. Minnti á yfirlýsingar í Séð og heyrt hjá tannlækninum. Gallinn þar var bara sá, að eintökin voru gömul. Ofur-ástfangna fólkið var skilið, þegar ég las um ástina. Minnti mig á allt fólkið, sem ég hef þekkt áratugum saman. Það hefur allt verið í einu hjónabandi alla ævi. Nú á dögum er fólk ótrúlega mikið ástfangnara. Endist samt ótrúlega lítið í hjónabandi. Er það, sem kallað er ást núna, ekki “infatuation”, eins konar della með væntingum, sem aldrei verða uppfylltar? Síðan tekur bara ein della við af annarri.