Árni Páll Árnason kemur undarlega fyrir í sjónvarpi. Stjarfur skýtur hann augum til himins. Skilur ekki spurningar og leitar svara, sem ekki koma að ofan. Heillaður af því rugli, að kvótagreifar séu það sama og sjávarútvegur. Heldur, að fiskur hverfi af miðunum og skip fari í brotajárn, ef stjakað er við kvótagreifum. Eru þeir þó sannanlega manna sízt hæfir til að reka útveg. Tóku 560 milljarða að láni til að fjárfesta í greininni fyrir 80 milljarða. Þessir skuldum vöfðu bófar eru óhæfir til að reka sjávarútveg. Við þurfum að losna við þá úr sjávarútvegi og það skilur vitgrannur ráðherrann alls ekki.