Aldeilis fráleitt er, að bankaráðherra lýsi yfir, að hann hafi ekki hugmynd um laun yfirmanna í bönkum. Enn fráleitara er, að Fjármálaeftirlitið segi honum, að laun yfirmanna í bönkum komi ráðherranum ekki við. Við lifum í skrípamynd. Hrunverjar stjórna bönkunum og Fjármálaeftirlitinu og ráðherra sjálfur er hrunverji. Hvernig á að vera hægt að endurreisa Ísland, ef allt er við það sama í bönkunum, í Fjármálaeftirlitinu og í Bankasýslu ríkisins? Ef bankaráðherrann sjálfur er eftirlegukind frá hruninu? Svör Árna Páls Árnasonar við fyrirspurn um laun í bönkum er ýkt dæmi um botnlaust rugl.