Gunnar Sverrisson og Karl Þráinsson í Íslenzkum aðalverktökum höfðu Arion-banka að fífli. Fengu afskrifaða tíu til fimmtán milljarða út á að hverfa frá fyrirtækinu. Nýr eigandi var svissneskur, Martin Holdings. Það var bara yfirvarp. Nokkrum mánuðum síðar reyndust Gunnar og Karl vera komnir aftur til valda í fyrirtækinu. Arion-banki hefur látið leka, að valdamenn þar séu ósáttir við þessa útkomu dæmisins. Enda er þjóðin andvíg bönkum, sem mylja undir ofurmenni, er komu fyrirtækjum á hausinn. En málið er einfaldlega, að stjórnendur Arion-banka voru hafðir að fífli, því að þeir eru bara fífl.