Arðsemi fjármagns er mikil í ferðaþjónustu. Tiltölulega lítið kostar að búa til atvinnutækifæri. Ólíkt orkuöflun og stóriðju, þar sem arðsemi fjármagns hefur nánast engin verið um áratugi. Hins vegar er arðsemi vinnu ekki mikil í ferðaþjónustu. Laun eru fremur lág. Mikilvægi greinarinnar er mest á tímum atvinnuleysis eins og nú. Þess vegna er rétt að reyna að efla ferðaþjónustu núna. Ekki er þó allt fengið með fjölgun túrista eins og hefur komið í ljós. Brýnna er að fá hingað fleira vel stætt fólk og fá það að vetrarlagi. Knýja þarf fram góða arðsemi vinnu í stíl við góða arðsemi fjármagns í greininni.